Undanfarin ár hefur hin þýska ferðaskrifstofa Katla travel GmbH og samstarfsfyrirtæki hennar á Íslandi, Katla DMI ehf og Viator ehf, styrkt skógrækt á Haukadalsheiði. Hafa verið gróðursettar vel á annan tug þúsunda plantna fyrir tilstilli þessara fyrirtækja í uppgræðslusvæði á Haukadalsheiði. Á dögunum heimsóttu starfsmenn fyrirtækjanna í Þýskalandi og á Íslandi svæðið og var af því tilefni sett upp skilti á heiðinni. Á næstu árum mun vaxa upp birkiskógur á svæðinu sem á eftir að sá sér yfir nálæg svæði og vernda þar jarðveg. Skógrækt ríkisins þakkar þessum aðilum stuðninginn í þessu metnaðarfulla verkefni.

frett_03102011_1

frett_03102011_2

frett_03102011_4

Texti og myndir. Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi