Sorbus mougeotii

Hæð: Fremur lágvaxið  tré, ætti að geta náð a.m.k. 10 m hérlendis

Vaxtarlag: Einstofna með breiða krónu

Vaxtarhraði: Fremur hægur

Landshluti: Víða um land

Sérkröfur: Þarf frjósaman jarðveg

Styrkleikar: Blóm, ber

Veikleikar: Reyniáta, trjámaðkur, haustkal

Athugasemdir: Mun styttri og minni reynsla er af alpareyni á Íslandi en af silfur- eða gráreyni. Hann virðist þó geta gegnt svipuðu hlutverki í garðrækt og e.t.v. skógrækt