Á dagskrá Fagráðstefnu er m.a. ferð að Mógilsá. Mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir.
Á dagskrá Fagráðstefnu er m.a. ferð að Mógilsá. Mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir.

Umhverfis- og auðlindaráðherra ávarpar ráðstefnuna við upphaf hennar

Ráðherra skógarmála, Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, flytur ávarp við upphaf Fagráðstefnu skógræktar sem hefst í Hörpu í Reykjavík í dag. Rannsóknastöð skógræktar Mógilsá hefur umsjón með Fagráðstefnunni á afmælisári sínu því nú er hálf öld liðin frá því að stöðin á Mógilsá tók til starfa.

Ráðstefnan fer fram í salnum Kaldalóni og lýkur síðdegis á morgun, föstudag. Dagskránni í dag lýkur á ferð að Mógilsá þar sem rannsóknastöðin verður skoðuð og litast um í skóginum þar í kring.

Yfirskrift Fagráðstefnu skógræktar að þessu sinni er Með þekkingu ræktum við skóg. Yfirskriftin undirstrikar ekki aðeins afmælisár skógræktarrannsókna á Mógilsá heldur vísar hún til þess að nú þegar við blasir að Íslendingar auki skógrækt sem lið í að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum er nauðsynlegt að byggja þá aukningi á traustum þekkingargrunni. Efla verður skógrannsóknir um leið og blásið verður í seglin í sjálfri skógræktinni.

Erindin á dagskrá Fagráðstefnunnar bera þetta með sér. Frá Svíþjóð kemur Jonas Rönnberg, skógfræðiprófessor við sænska landbúnaðarháskólann SLU. Hann flytur fyrsta erindi ráðstefnunnar að loknum ávörpum Bjartar Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Þrastar Eysteinssonar skógræktarstjóra. Jonas talar um strauma og stefnur í skógræktarrannsóknum á Norðurlöndunum sem er áhugavert fyrir íslenskt skógræktarfólk enda hafa frændþjóðirnar í Skandinavíu frá upphafi verið uppspretta þekkingar, reynslu og efniviðar fyrir skógrækt á Íslandi.

Aðalsteinn Sigurgeirsson fagmálastjóri rekur sögu skógræktarrannsókna á Íslandi og Edda Sigurdís Oddsdóttir, sviðstjóri rannsóknasviðs Skógræktarinnar, lítur til framtíðar í þeim efnum. Fjallað veðrur um erfðaauðlindina í skógrækt, trjásjúkdóma og aðra skaðvalda, landsskógaútekt, nýtingu landupplýsinga í skógrækt, veðurfar, lífhagkerfið, asparskóga og hagfræði. Sérfræðingar á Rannsóknastöð skógræktar Mógilsá flytja öll erindi fyrri dags Fagráðstefnunnar að erindi Rönnbergs frátöldu.

Síðari daginn verða flutt fjölbreytileg erindi um ýmsar hliðar skógræktar. Rétt er að benda sérstaklega á erindi Árna Bragasonar landgræðslustjóra um skógrækt til landgræðslu og einnig verður t.d. forvitnilegt að heyra hjá Bjarna Diðriki Sigurðssyni, prófessor við LbhÍ, hvort Holuhraunsgosið hafði einhver áhrif á skóga, jarðveg eða vatn. Fagráðstefnu skógræktar lýkur með pallborðsumræðum.


Dagskrá Fagráðstefnu skógræktar 2017


Fimmtudagur

23.3.2017 Kaldalón, Hörpu
Fyrirlesari
08.00 Afhending ráðstefnugagna
08:30 Setning ráðstefnu
08:40 Ávarp skógræktarstjóra Þröstur Eysteinsson
09.00
Ávarp umhvefis- og auðlindaráðherra
 Björt Ólafsdóttir
09.10 Straumar og stefnur í skógræktarrannsóknum á Norðurlöndum Jonas Rönnberg
09.55 Kaffi
10.20 Saga skógræktarrannsókna á Íslandi Aðalsteinn Sigurgeirsson
10.40 Skógræktarrannsóknir til framtíðar Edda S. Oddsdóttir
11.00 Erfðauðlindin í íslenskri skógrækt
Brynjar Skúlason
11.20 Trjásjúkdómar - vöktun og rannsóknir
Halldór Sverrisson
11.40 Hádegisverður
12.40 Skaðvaldar Brynja Hrafnkelsdóttir
13.00 Landskógaúttekt Arnór Snorrason
13.20 Notkun landupplýsinga í skógræktarrannsóknum Björn Traustason
13.40 Hvernig viðrar? Bjarki Þ. Kjartansson
14.00 Skógar og lífhagkerfið
Ólafur Eggertsson
14.20 Ræktun asparskóga í ólíkum landgerðum
Jóhanna Ólafsdóttir
14.40 Vöxtur og vextir – 200 ára deila skógfræði og hagfræði um sjálfbærni Þorbergur H. Jónsson
15.00 Ferð á Mógilsá
17.30 Brottför til Reykjavíkur
19.30 Hátíðarkvöldverður á Hótel Sögu

Föstudagur

24.3.2017 Kaldalón, Hörpu
09.00 Skógrækt til landgræðslu Árni Bragason
09.20 Hafði Holuhraunsgosið áhrif á skóga, jarðveg eða vatn? Bjarni D. Sigurðsson
09.40 Endurskinshæfni (albedo) ólíkra gróðurlenda Brynhildur Bjarnadóttir
10.00 Kaffi
10.30 Skammlotuskógrækt með alaskaösp og áhrif áburðargjafar á hana Jón Auðunn Bogason
10.50 Uppruni og erfðabreytileiki blæaspar (Populus tremula L) á Íslandi Sæmundur Sveinsson
11.10 Ræktun birkis
Þorsteinn Tómasson
11.30 Íbætur skógarmoldar á nýskógrækt
Sigurkarl Stefánsson
11.50 Hádegisverður
13.00 Meðferð lerkiskógarreita í ljósi beinleika stofna Páll Sigurðsson
13.20 Vangaveltur um vindfall í skógum Valdimar Reynisson
13.40 Lesið í skóginn, fræðsla í skógrækt Björgvin Eggertsson og Ólafur Oddsson
14.00 Veggspjöld og kaffi
15.00 Miðlun þekkingar Pétur Halldórsson
15.30 Pallborðsumræður – samantekt
16.30 Ráðstefnuslit

Texti: Pétur Halldórsson