Mynd af mak.is
Mynd af mak.is

Skógarauðlindin - innviðir og skipulag verður þema Fagráðstefnu skógræktar sem fram fer í Hofi á Akureyri dagana 20.-21. mars 2024. Auglýst verður eftir fyrirlestrum og veggspjöldum í byrjun árs. 

Fagráðstefna skógræktar verður nú haldin í samstarfi hinnar nýju stofnunar, Lands og skógar, sem verður til 1. janúar, Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarfélags Íslands, Skógfræðingafélags Íslands og Bændasamtaka Íslands. Á fundi undirbúningsnefndar sem haldinn var 12. desember var ákveðið að þema ráðstefnunnar að þessu sinni yrði Skógarauðlindin – innviðir og skipulag. Fyrirlestrar og umræður um þetta þema verða fyrri dag ráðstefnunnar en seinni daginn er rými fyrir hvers kyns málefni sem tengjast skógum og skógrækt, rannsóknum, skógtækni og skyldum efnum.

Fagráðstefna skógræktar er eins og heitið gefur til kynna vettvangur þekkingarmiðlunar og umræðu í skógargeiranum. Ráðstefnan hefur verið haldin í rúma tvo áratugi og hleypur til milli landshluta frá ári til árs. Á árinu sem nú er að líða var hún haldin í Edinborgarhúsinu á Ísafirði og þar áður á Hótel Geysi í Haukadal.

Eyðublað fyrir tillögur að erindum og veggspjöldum

Texti: Pétur Halldórsson